Fotbolti.net
28.12.16 - 18:11
Jóhann Ingi Hafþórsson

Viðar Ari með besta mark Bose mótsins

Viðar Ari með verðlaunin.

Viðar Ari með verðlaunin.

Canon

Mynd: Bose

Viðar Ari Jónsson, leikmaður Fjölnis, skoraði besta mark Bose mótsins sem fram fór í desember.

Hann skoraði þá þriðja mark Fjölnis í 6-1 sigri á FH í úrslitaleiknum. Viðar fór þá upp hægri vænginn, fór auðveldlega framhjá varnarmönnum FH, áður en hann skoraði með hörkuskoti.

Viðar fékk að launum SoundSport heyrnatól frá Bose og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, var hann kátur með verðlaunin.

Hér að neðan má sjá markið flotta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.