fim 28. desember 2017 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
England: Alexis Sanchez afgreiddi Palace
Mynd: Getty Images
Crystal Palace 2 - 3 Arsenal
0-1 Shkodran Mustafi ('25)
1-1 Andros Townsend ('49)
1-2 Alexis Sanchez ('62)
1-3 Alexis Sanchez ('66)
2-3 James Tomkins ('89)

Crystal Palace hafði ekki tapað leik undir stjórn Roy Hodgson þegar Arsenal kíkti í heimsókn í kvöld.

Arsenal stjórnaði fyrri hálfleiknum og fór inn í leikhléð með verðskuldaða forystu.

Andros Townsend jafnaði snemma í síðari hálfleik og fengu heimamenn færi til að komast yfir áður en Alexis Sanchez komst í gang.

Alexis skoraði tvö mörk á fjögurra mínútna kafla og hélt Arsenal forystunni þar til í lokin, þegar James Tomkins minnkaði muninn eftir hornspyrnu frá Townsend.

Heimamönnum tókst ekki að jafna og nældi Arsenal sér í afar dýrmæt stig í meistaradeildarbaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner