fim 28. desember 2017 22:38
Ívan Guðjón Baldursson
Wenger: Sannfærandi sigur - Wilshere frábær
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger er ánægður með að taka þrjú stig heim af Selhurst Park eftir 3-2 sigur gegn Crystal Palace.

Arsenal er í fimmta sæti deildarinnar, með 37 stig eftir 20 umferðir. Liðið er aðeins einu stigi frá Liverpool í þriðja sæti.

„Yfir heildina litið var þetta sannfærandi sigur þó að seinni hálfleikurinn hafi verið erfiðari en sá fyrri," sagði Wenger að leikslokum.

„Þetta er erfiður útivöllur og það er frábært að koma héðan með þrjú stig. Við þjáðumst aðeins í lokin en stjórnuðum stærsta part leiksins og áttum skilið að vinna."

Alexis Sanchez gerði tvennu í leiknum og hefur Wenger ekkert að segja um hans samningsmál. Stjórinn hrósaði Wilshere í hástert fyrir sína frammistöðu.

„Ég hef ekkert að segja um framtíðarmál Alexis Sanchez. Ég get bara endurtekið það sem ég hef sagt hingað til.

„Wilshere átti frábæran leik og sannaði að hann er kominn til baka úr meiðslum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner