Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 29. janúar 2015 13:00
Elvar Geir Magnússon
Aston Villa og Hull vilja Demba Ba
Demba Ba í leik með Chelsea.
Demba Ba í leik með Chelsea.
Mynd: Getty Images
Demba Ba hefur skorað 14 mörk í 20 leikjum fyrir Besiktas og vilja ensku úrvalsdeildarfélögin Aston Villa og Hull fá hann í sínar raðir. Einnig hefur heyrst af áhuga West Bromwich Albion.

Laun sóknarmannsins gætu þó staðið í veginum fyrir því að han komi aftur í enska boltann á næstunni.

Ba er fyrrum leikmaður West Ham, Newcastle og Chelsea en náði ekki að festa sig í sessi hjá síðastnefnda liðinu.

Hull er einnig að skoða möguleika á að fá Nick Powell, sóknarmann Manchester United, á lánssamningi. Wigan, Derby og Bolton hafa einnig áhuga á Powell þrátt fyrir að lánssamningi við Leicester hafi verið rift á undan áætlun þar sem hann var talinn hafa neikvæð áhrif á andann í hópnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner