Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. janúar 2015 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Blatter ætlar að bjóða sig aftur fram
Sepp Blatter.
Sepp Blatter.
Mynd: Getty Images
Svisslendingurinn Sepp Blatter hefur staðfest að hann muni bjóða sig fram til forseta FIFA, fimmta kjörtímabilið í röð.

Blatter staðfesti þetta á Twitter síðu sinni í dag, en umsóknarfrestur fyrir framboðið rennur út í dag.

Undir stjórn Blatter hefur FIFA verið harðlega gagnrýnt og mun hann fá mikla samkeppni um forsetaembættið.

Luis Figo, Jórdaníuprinsinn Ali bin Al-Hussein, Jerome Champagne og Michael van Praag hafa einnig allir boðið sig fram.
Athugasemdir
banner
banner