fim 29. janúar 2015 19:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Football Italia 
Cuadrado með Chelsea um helgina?
Juan Cuadrado var frábær á HM í fyrra.
Juan Cuadrado var frábær á HM í fyrra.
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar fullyrða að Chelsea ætli sér að landa Juan Cuadrado fyrir helgina og búast við að hann verði klár fyrir leik liðsins gegn Manchester City.

Cuadrado er sagður hafa þegar kvatt samherja sína hjá Fiorentina og að hann muni fljúga til Lundúna í kvöld, þar sem hann mun ganga frá vistarskiptum sínum.

Virtur ítalskur blaðamaður, Gianluca Di Marzio, hefur í kvöld greint frá því að Chelsea hafi náð samkomulagi við Fiorentina um kaupverðið og að Mohamed Salah verði lánaður til ítalska liðsins í staðinn.

Cuadrado gekk í raðir Fiorentina frá Udinese árið 2012. Hann hefur síðan þá sannað sig sem einn besti leikmaður ítölsku deildarinnar og á hann fast sæti í landsliði Kólumbíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner