Christian Eriksen var enn einu sinni hetja Tottenham í gær þegar hann tryggði liðinu sæti í úrslitum enska deildabikarsins með marki á 88. mínútu gegn Sheffield United.
Eriksen hefur verið iðinn við kolann undanfarnar vikur en hann hefur síðan í nóvember einnig náð að tryggja Tottenham sigur gegn Hull, Swansea og Sunderland með mörkum í lok leikja.
Eriksen hefur verið iðinn við kolann undanfarnar vikur en hann hefur síðan í nóvember einnig náð að tryggja Tottenham sigur gegn Hull, Swansea og Sunderland með mörkum í lok leikja.
,,Látið mig bara fá boltann eftir 88. mínútu," sagði Daninn léttur í bragði eftir leikinn í gær.
,,Ég hugsaði ekki um að við værum að klúðra þessu en ég var farinn að hugsa um framlengingu."
Eriksen jafnaði leikinn í gær 2-2 og Tottenham fór um leið áfram samanlagt 3-2.
Athugasemdir