Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 29. janúar 2015 15:36
Elvar Geir Magnússon
Gínea dregin í 8-liða úrslitin - Malí situr eftir
Mynd: Getty Images
Gínea hefur fengið sæti í 8-liða úrslitum Afríkumótsins eftir drátt sem fram fór í dag.

Gínea og Malí enduðu hnífjöfn í 2.-3. sæti D-riðils mótsins og þurfti að draga um hvort liðið færi áfram. Þar kom Gínea upp úr pottinum og Malí situr eftir með sárt ennið.

Gíneumenn mæta Ganverjum í 8-liða úrslitum.

Leikirnir í 8-liða úrslitum í 31. janúar og 1. febrúar
Kongó - Austur-Kongó
Túnis - Miðbaugs-Gínea
Gana - Gínea
Fílabeinsströndin - Alsír
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner