Thierry Henry hefur verið að mæta í kennslutíma fyrir verðandi þjálfara á vegum evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA.
Tímarnir eru í Wales og ætlar Henry sér að verða knattspyrnustjóri í framtíðinni, en eins og staðan er í dag starfar hann sem knattspyrnusérfræðingur hjá Sky Sports.
Tímarnir eru í Wales og ætlar Henry sér að verða knattspyrnustjóri í framtíðinni, en eins og staðan er í dag starfar hann sem knattspyrnusérfræðingur hjá Sky Sports.
Ef allt gengur að óskum gæti Henry verið með öll þjálfararéttindin sem þarf strax í sumar.
Svíinn Freddie Ljungberg mætir líklega í tímana með Henry en tvímenningarnir spiluðu saman hjá Arsenal á sínum tíma.
Athugasemdir