Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 29. janúar 2015 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Ivica Olic aftur til Hamburg (Staðfest)
Ivica Olic.
Ivica Olic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatinn Ivica Olic er genginn aftur í raðir síns gamla félags Hamburg frá Wolfsburg.

Olic, sem er 35 ára gamall, spilaði með Hamburg í 3 ár áður en hann gekk í raðir FC Bayern árið 2009. Þar vann hann þýsku deildina einu sinni og gekk svo í raðir Wolfsburg árið 2012.

,,Ég er ánægður með þessa lausn og ég held að allir hlutaðeigendur séð sáttir," sagði Olic.

,,Nú hlakkar mér til að spila með Hamburg. Þetta er ný áskorun."

Olic skoraði 29 mörk í 78 leikjum á meðan fyrri dvöl hans hjá Hamburg stóð.
Athugasemdir
banner
banner
banner