Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 29. janúar 2015 21:30
Daníel Freyr Jónsson
Mathieu: Messi missti stjórn á sér
Jeremy Mathieu.
Jeremy Mathieu.
Mynd: Getty Images
Frakkinn Jeremy Mathieu, leikmaður Barcelona, hefur staðfest að Lionel Messi hafi misst stjórn á skapi sínu á æfingu fyrr í mánuðinum.

Mikið var gert úr atvikinu eftir að spænskir fjölmiðlar greindu frá því, en ekkert heyrðist úr herbúðunum Barcelona.

Gengur sumir fjölmiðlar svo langt að segja að Messi væri á förum frá félaginu eftir atvikið, en Mathieu gerir lítið úr því og segir að Luis Enrique, stjóri liðsins, hafi klárað málið fljótlega.

,,Þetta gerðist eftir að við komum aftur úr fríi," sagði Mathieu.

,,Messi missti stjórn á sér eftir að hafa ekki fengið aukaspyrnu á æfingu. Hiti færðist í leikinn og þeir skiptust á vel völdum orðum."

,,Enrique ræddi síðan við hann í búningsklefanum eftir það. Það var endirinn."
Athugasemdir
banner
banner