Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 29. janúar 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Sinclair búinn í læknisskoðun hjá Aston Villa
Sinclair hefur lítið spilað undanfarin ár.
Sinclair hefur lítið spilað undanfarin ár.
Mynd: Getty Images
Scott Sinclair er búinn í læknisskoðun hjá Aston Villa og líklegt er að hann gangi í raðir félagsins fyrir helgi.

Sinclair hefur einungis leikið 19 leiki með Manchester City síðan hann kom til félagsins frá Swansea árið 2012.

Aston Villa hefur sýnt Sinclair áhuga að undanförnu en 3,5 milljóna punda verðmiði City virtist þó hafa komið í veg fyrir samninga.

Nú er aftur á móti útlit fyrir að Sinclair fari til Aston Villa á láni út tímabilið.

Hinn 25 ára gamli Sinclair var í láni hjá WBA á síðasta tímabili þar sem hann spilaði ellefu leiki.
Athugasemdir
banner
banner