Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. mars 2015 15:01
Arnar Geir Halldórsson
Dagný og stöllur hennar komnar á toppinn
Dagný hefur stimplað sig rækilega inn í stórlið Bayern
Dagný hefur stimplað sig rækilega inn í stórlið Bayern
Mynd: Getty Images
SC Sand 1-2 Bayern Munchen
1-0 Allison-Lee Scurich ('2)
1-1 Gina Lewandowski (´28)
1-2 Caroline Abbe (´69)

Dagný Brynjarsdóttir var í byrjunarliði Bayern Munchen í þýsku Bundesligunni í dag. Dagný og stöllur hennar lentu óvænt undir eftir tveggja mínútna leik en tókst að koma til baka og innbyrða þrjú stig.

Dagný var tekin af velli eftir tæplega klukkutíma leik.

Sigurinn færir liðinu toppsætið í deildinni en liðið hefur tveggja stiga forskot á Wolfsburg, sem á þó leik til góða.

Nú tekur við páskafrí í deildinni og er næsti leikur Dagnýjar ekki fyrr en 19.apríl. Fer þá í hönd mikil barátta um þýska meistaratitilinn þar sem Frankfurt og Turbine Potsdam eru ekki langt undan í 3. og 4.sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner