Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. mars 2015 08:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Del Bosque vill að Victor Valdes spili með United
Vicente del Bosque
Vicente del Bosque
Mynd: Getty Images
Vicente del Bosque segir að hann vonast til að Victor Valdes fari að fá tækifæri með aðalliði Manchester United.

Spænski markmaðurinn gékk til liðs við United á 18 mánaða samning í janúar en hann hefur ekki enn spilað leik fyrir félagið.

Del Bosque, þjálfari spænska landsliðsins finnst það leiðinlegt að hann fái ekki að spila.

„Ég veit hvernig hann er á æfingum. Ég reyni að spá ekki í að hann sé á bekknum en ég get séð að hann er ekki að spila."

„Ég vonast til að hann spili því hann er frábær í landsliðshópnum," sagði Del Bosque.
Athugasemdir
banner
banner
banner