sun 29. mars 2015 08:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ibe vongóður um að spila aftur á leiktíðinni
Jordon Ibe
Jordon Ibe
Mynd: Getty Images
Jordon Ibe er vongóður um að ná að spila á leiktíðinni eftir að hafa byrjað að æfa aftur eftir meiðsli.

Vængmaðurinn ungi var að mestum hluta tímabils á láni hjá Derby County í Championship deildinni áður en hann kom aftur til Anfield í janúar.

Hann vann sér inn sæti í byrjunarliði liðsins og spilaði fimm leiki í eildinni áður en hann meiddist.

„Ég er að njóta þess að æfa og vonandi kemst ég aftur í liðið. Ég var svolítið stressaður að byrja að æfa aftur því ég hafði ekki æft á grasi í fjórar vikur."

„Ef allt gengur vel þá ætti ég að geta spilað aftur á leiktíðinni," sagði Ibe.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner