Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 29. mars 2015 09:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kovacic ekki á leið til Liverpool
Mateo Kovacic.
Mateo Kovacic.
Mynd: Getty Images
Mateo Kovacic, leikmaður Inter Milan mun ekki fara til Liverpool samkvæmt umboðsmanni hans.

Króatinn hefur mikið verið orðaður við Liverpool undanfarið en hann er metinn á um 30 milljónir punda.

Umboðsmaður kappans segir hins vegar að hann muni vera áfram hjá Inter.

„Þetta er ekki að fara að gerast. Mateo skrifaði undir nýjan samning við Inter í janúar. Liðin eru ekki að ræða við hvort annað," sagði Nikky Vuksan umboðsmaður leikmannsins.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner