ÍA 4-3 Fjarðabyggð
1-0 Marko Andelkovic (´35)
2-0 Arsenij Buinickij ('52)
3-0 Arsenij Buinickij (´64)
3-1 Brynjar Jónasson (´67)
3-2 Viktor Örn Guðmundsson (´71)
4-2 Arsenij Buinickij (85)
4-3 Brynjar Jónasson (´90)
1-0 Marko Andelkovic (´35)
2-0 Arsenij Buinickij ('52)
3-0 Arsenij Buinickij (´64)
3-1 Brynjar Jónasson (´67)
3-2 Viktor Örn Guðmundsson (´71)
4-2 Arsenij Buinickij (85)
4-3 Brynjar Jónasson (´90)
Skagamenn fengu Fjarðabyggð í heimsókn í Akraneshöllina í dag en þetta var annar leikur gestanna á tveim dögum.
Það leit lengi vel út fyrir þægilegt dagsverk hjá heimamönnum en erlendu leikmenn liðsins, Marko Andelkovic og Arsenij Buinickij, sáu til þess að ÍA komst í 3-0. Þá virtust Skagamenn slaka á klónni og hleyptu Fjarðabyggð inn í leikinn.
Tvö mörk á fjögurra mínútna kafla í seinni hálfleik hleyptu spennu í leikinn en Skagamenn gátu andað léttar á 85.mínútu þegar Arsenij Buinickij fullkomnaði þrennu sína og tryggði sigurinn. Gestirnir náðu þó að klóra í bakkann á lokaandartökum leiksins.
Skagamenn tryggðu sér þar með toppsætið í riðli 3 í A-deild Lengjubikarsins og eru komnir í 8-liða úrslit. Fjarðabyggð lýkur hins vegar leik í Lengjubikarnum þetta árið með 7 stig úr sjö leikjum.
Athugasemdir