Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 29. mars 2015 13:47
Arnar Geir Halldórsson
Lengjubikar: Ólafsvíkingar lögðu Eyjamenn
Kenan Turudija sá um Eyjamenn
Kenan Turudija sá um Eyjamenn
Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
ÍBV 0-1 Víkingur Ó.
0-1 Kenan Turudija (´27)
Rautt spjald: Guðjón Orri Sigurjónsson (´87)

ÍBV og Víkingur Ólafsvík áttust við í Akraneshöllinni í hádeginu í dag í Lengjubikarnum.

Kenan Turudija gerði eina mark leiksins eftir tæplega hálftíma leik en Ólafsvíkingar fengu tækifæri til að gera út um leikinn á lokamínútunum en þeir klúðruðu vítaspyrnu.

Þetta var annar sigur Ólafsvíkinga í Lengjubikarnum en liðið á ekki möguleika á sæti í 8-liða úrslitum.

Eyjamenn fara heldur ekki í 8-liða úrslit en þeir eru í 7.sæti riðilsins með sex stig eftir sex leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner