Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. mars 2015 13:15
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: KSÍ 
Ólafur Ingi inn í hópinn fyrir leikinn gegn Eistum
Icelandair
Ólafur Ingi fær að etja kappi við Eista
Ólafur Ingi fær að etja kappi við Eista
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn fyrir æfingaleikinn gegn Eistlandi á þriðjudag.

Eins og við höfum áður greint frá hafa Aron Einar Gunnarsson og Eiður Smári Guðjohnsen dregið sig úr hópnum en Aron fær frí í leiknum til að hitta nýfæddan son sinn á meðan Eiður Smári fær frí þar sem hann á von á barni.

Ólafur Ingi Skúlason hefur nú verið kallaður inn í hópinn en ekki er loku fyrir það skotið að fleiri leikmenn verði kallaðir inn fyrir leikinn á þriðjudag.

„Menn voru hálftæpir í kvöld svo við skoðum það betur í kvöld og á morgun hvort við þurfum að kalla einhverja fleiri til Eistlands," sagði Heimir eftir leikinn gegn Kasökum í gær.

Ólafur Ingi mun hitta liðið í Tallinn en hann á 24 landsleiki að baki fyrir Íslands hönd.
Athugasemdir
banner
banner
banner