Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. mars 2015 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Rooney líkar vel við ábyrgðar hlutverk
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, framherji Manchester United kann að meta að vera með reynslumeiri mönnum í enska landsliðinu.

Hinn 29 ára gamli Rooney spilaði sinn 102 landsleik á föstudag í 4-0 sigri á Litháen og nálgast liðið nú EM í Frakklandi.

„Það er mikil ábyrgð á mér en ég kann að meta hana þar sem ég er fyrirliði," sagði Rooney.

„Ég vona að ég geti hjálpað með reynslunni minni og gert yngri leikmenn betri. Mikið af fólki mun reyna að hjálpa þér en það er best ef þú lærir á eigin spítur. Þú gerir mistök þegar þú ert ungur en það gerir þig að betri leikmanni."

Athugasemdir
banner