Luis Suarez, framherji Barcelona, var mættur á sinn gamla heimavöll Anfield þegar hann spilaði í góðgerðarleik Steven Gerrard í dag.
Úrúgvæski landsliðsmaðurinn var í guðatölu hjá Liverpool en yfirgaf félagið síðasta sumar til að fara til Barcelona, þar sem hann hefur staðið sig vel.
Hann var þó mættur aftur á Anfield til heiðurs Gerrard í dag, en í viðtali eftir leikinn útilokaði hann ekki að hann myndi klæðast treyju Liverpool á nýjan leik.

,,Maður veit aldrei hvað gerist. En ef ég sný aftur til Englands, þá mun ég spila í treyju Liverpool. Ég mun aldrei klæðast treyju annars liðs á Englandi," sagði Suarez í viðtalinu.
Athugasemdir