Nokkrum leikjum var að ljúka í undankeppni EM 2016 rétt í þessu.
Þýskaland gerði sér góða ferð til Georgíu þar sem liðið vann 2-0 sigur, en þeir Marco Reus og Thomas Muller skoruðu mörkin með fimm mínútna millibili stuttu fyrir leikhlé.
Þá vann Skotland 6-1 stórsigur gegn Gíbraltar. Gíbraltar jafnaði metin að vísu í 1-1 en eftir það tóku Skotar öll völd og unnu sannfærandi. Steven Fletcher skoraði þrennu.
Norður Írland vann góðan 2-1 sigur gegn Finnlandi, en Kyle Lafferty skoraði bæði mörkin. Þá töpuðu frændur okkar í Færeyjum naumlega í Rúmeníu, 1-0.

Þá kom Albanía til baka og vann 2-1 sigur gegn Armeníu.
Athugasemdir