Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. mars 2015 15:16
Arnar Geir Halldórsson
Vine-myndband: Thierry Henry með mögnuð tilþrif
Galdramaður með boltann
Galdramaður með boltann
Mynd: Getty Images
Oft er talað um að lengi lifi í gömlum glæðum og það á sennilega við um franska markahrókinn Thierry Henry.

Nú stendur yfir góðgerðarleikur á Anfield og er Henry þar að leika listir sínar ásamt fleiri stórstjörnum úr enska boltanum.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af skemmtilegum tilþrifum Henry en hann kom Ryan Babel í gott færi með þessari sendingu. Babel brást þó bogalistin og skaut framhjá markinu.

Þess má til gamans geta að staðan í leiknum er 2-1 fyrir liði Jamie Carragher en Fernando Torres og Luis Suarez komu inn í lið Steven Gerrard í hálfleik og freista þess að jafna metin.


Athugasemdir
banner
banner
banner