Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. apríl 2016 21:55
Arnar Geir Halldórsson
Borgunarbikarinn: 4. deildarlið sló Ægi út
Daði Kristjánsson skoraði annað mark KFG
Daði Kristjánsson skoraði annað mark KFG
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFG 2 - 0 Ægir
1-0 Bjarni Pálmason (´6)
2-0 Daði Kristjánsson (´89)
Rautt spjald: Eiríkur Ari Eiríksson, Ægir (´69)

Óvænt úrslit urðu í Borgunarbikarnum strax í 64-liða úrslitum þegar 4.deildarlið KFG tók á móti 2.deildarliði Ægis á Samsung vellinum í Garðabæ í kvöld.

Bjarni Pálmason kom KFG yfir snemma leiks og á 69.mínútu var Eiríki Ara Eiríkssyni vikið af velli í liði gestanna.

KFG nýtti sér liðsmuninn skömmu fyrir leikslok og tryggði sér farseðil í 32-liða úrslit Borgunarbikarsins.

Eins og við greindum frá fyrr í dag fékk Brynjar Björn Gunnarsson, fyrrum leikmaður Stoke, Watford, Reading, KR og fleiri liða, félagaskipti í KFG í morgun en hann var í byrjunarliði KFG í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner