Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fös 29. apríl 2016 16:30
Magnús Már Einarsson
Davíð Þór: Þetta kom ekki eins og sprengja
Davíð Þór Viðarsson.
Davíð Þór Viðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er oftast þannig að núverandi Íslandsmeisturum er spáð sigri. Þetta kom ekki eins og sprengja. Nú er það okkar að sanna þessar spár," segir Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, en allar spár fyrir mót segja að liðið verji Íslandsmeistaratitil sinn í sumar.

FH heimsækir nýliða Þróttar í fyrstu umferðinni á sunnudag klukkan 16:00.

„Það verður örugglega stemning í Laugardalnum á sunnudaginn. Það er langt síðan þeri voru í efstu deild. Þeir voru flottir í fyrstu deild í fyrra. Það eru allir að spá þeim falli en við áttum okkur á því að þetta verður erfiður leikur," sagði Davíð sem á vini sem styðja Þrótt.

„Ég á 2-3 ágætis félaga sem eru Þróttarar en þeir eru greinilega eitthvað smeykir fyrst þeir vilja ekki láta mig heyra það strax."

Gunnar Nielsen hefur ekki verið með FH í undaförnum leikjum en færeyski landsliðsmarkvörðurinn verður klár á sunnuadg.

„Hann var með á æfingu á þriðjudaginn og leit mjög vel út. Hann verður klár á sunnudaginn. ef eitthvað kemur upp á þér um við alltaf með Stjána (Kristján Finnbogason). Eins og sást gegn Val þá er hann ennþá ótrúlega góður í marki þó hann sé 57 ára," sagði Davíð brosandi.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar átti Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, óvænta innkomu.
Athugasemdir
banner
banner