fös 29. apríl 2016 20:03
Arnar Geir Halldórsson
Juventus kaupir Lemina (Staðfest)
Mario Lemina
Mario Lemina
Mynd: Getty Images
Ítalska meistaraliðið Juventus hefur gengið frá kaupum á ungstirninu Mario Lemina frá Marseille.

Þessi 22 ára gamli miðjumaður hefur eytt þessari leiktíð sem lánsmaður hjá ítalska liðinu sem hefur nú ákveðið að nýta sér kaupréttinn.

Juventus borgar tæpar 10 milljónir evra fyrir Lemina sem ákvað fyrr í vetur að leika fyrir landslið Gabon í stað franska landsliðsins.

Lemina gerir samning til ársins 2020 en hann hefur aðeins leikið ellefu leiki með Juventus í vetur og hafa tíð meiðsli kappans haft áhrif á spilatíma hans.
Athugasemdir
banner
banner