Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 29. apríl 2016 18:00
Magnús Már Einarsson
Redknapp ráðinn ráðgjafi í Ástralíu
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp hefur verið ráðinn ráðgajfi hjá ástralska félaginu Central Coast Mariners.

Hinn 69 ára gamli Redknapp hefur mörg járn í eldinum þessa dagana en hann er einnig ráðgjafi hjá Derby County.

Redknapp stýrði landsliði Jórdaníu einnig í tveimur leikjum nýlega en þar var um tímabundið starf að ræða.

Redknapp er þaulreyndur knattspyrnustjóri en hann hætti hjá QPR í fyrra eftir þriggja ára starf.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner