Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. apríl 2017 16:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Butland: Mér líður mjög vel
Butland er kominn aftur í mark Stoke.
Butland er kominn aftur í mark Stoke.
Mynd: Getty Images
„Mér líður mjög vel með það að vera kominn aftur út á völl. Ég er ánægður með að geta hjálpað til og hafa haldið hreinu í dag," sagði Jack Butland, markvörður Stoke eftir leik gegn West Ham í dag.

Leikurinn endaði með markalausu jafntefli, líklega úrslit sem bæði lið geta sætt sig við. Þau eru í miðjumoði.

Jack Butland er farinn að spila aftur eftir meira en árs fjarveru. Hann er virkilega ánægður með að vera kominn aftur.

„Stuðningsmennirnir hafa verið ótrúlegir á síðustu 13 mánuðum og þeir hafa stutt við bakið á mér. Þetta hefur verið erfitt persónulega fyrir mig og ég naut þess að fá góðar móttökur í dag."

„Jafntefli voru sanngjörn úrslit í dag. Við fengum nokkur góð færi, en gáum því miður ekki nýtt þau. Þetta var skemmtilegt 0-0 jafntefli fyrir stuðningsmenn," sagði Butland að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner