Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 29. apríl 2017 10:49
Hafliði Breiðfjörð
Keflavík mætir Víði í Reykjaneshöllinni
Njarðvík - ÍR einnig færður inn í hús
Nettóvöllurinn í gærkvöldi.
Nettóvöllurinn í gærkvöldi.
Mynd: Aðsend
Enn einu sinni þarf að gera breytingar á leik Keflavíkur og Víðis í Borgunarbikar karla en leikurinn hefur verið færður í Reykjaneshöllina.

Upphaflega stóð til að spila leikinn á Nettóvellinum í Keflavík í gærkvöldi en þá kyngdi niður snjó og völlurinn varð óleikhæfur.

Því var leikurinn færður til og átti að spila hann á sama stað 12:00 í dag. Völlurinn er þó ekki klár og því er búið að færa leikinn inn í hús.

Hann hefst því 12:00 í Reykjaneshöllinni.

Það sama hefur svo verið gert með viðureign Njarðvíkur og ÍR en hann hefst 15:00 í Reykjaneshöllinni. Þá hefur leik Reynis Sandgerði og Hauka verið frestað.
Athugasemdir
banner
banner