Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. apríl 2017 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Vítaspyrnukeppnin hjá Víði og Keflavík
Víðir vann 5-4 eftir vítaspyrnukeppni
Frábær sigur hjá Víði.
Frábær sigur hjá Víði.
Mynd: Víðir
Keflavík 0 - 0 Víðir
Víðir vann 5-4 eftir vítaspyrnukeppni

Óvænt úrslit litu dagsins ljós í Borgunarbikar karla þegar Víðir úr Garði lagði Keflavík í Reykjaneshöllinni. Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni og þar höfðu Víðismenn betur eftir eina umferð í bráðabana.

Ekkert mark var skorað eftir venjulegan leiktíma, og ekkert var heldur skorað í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni.

Keflavík, sem leikur í Inkasso-deildinni, klúðraði tveimur spyrnum, en Víðir, sem leikur í 2. deild, klúðraði aðeins einni.

Víkurfréttir hafa nú birt myndband af vítaspyrnukeppninni. Þar er einnig viðtal við Eyþór Guðmundsson, markvörð Víðis, en hann varði vítaspyrnur frá báðum „Víðismönnunum“ í liði Keflavíkur.

Hér að neðan má sjá vítaspyrnukeppnina og viðtalið.


Athugasemdir
banner
banner