Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. apríl 2017 18:50
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Þýskaland: Bayern Munchen Þýskalandsmeistari (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Lewandowski skoraði tvö.
Lewandowski skoraði tvö.
Mynd: Getty Images
Wolfsburg 0 - 6 Bayern
0-1 David Alaba ('19 )
0-2 Robert Lewandowski ('36 )
0-3 Robert Lewandowski ('45 )
0-4 Arjen Robben ('66 )
0-5 Thomas Muller ('80 )
0-6 Joshua Kimmich ('85 )

Bayern München tryggði sér Þýskameistaratitilinn eftir 6-0 útisigur á Wolfsburg í kvöld.

David Alaba skoraði fyrsta mark leiksins á 19. mínútu, Robert Lewandowski skoraði tvö mörk fyrir lok fyrri hálfleiks og staðan því 0-3 fyrir gestunum í Bayern í hálfleik.

Staðan var orðinn 0-4 eftir 66 mínútur þegar Arjen Robben setti boltann í mark heimamanna.

Thomas Muller skoraði fimmta mark gestanna á 80. mínútu og Joshua Kimmich gulltryggði svo öruggan 0-6 sigur Bayern á 85. mínútu.

RB Leipzig situr í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar tíu stigum á eftir Bayern þegar þrjár umferðir eru eftir og á því ekki lengur möguleika á að ná Bayern.

Þetta er fimmta skiptið í röð sem Bayern verður þýskur meistari.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner