Hinn 23 ára Christian Atsu sem er í eigu Chelsea hefur skrifað undir eins árs lánssamning við Bournemouth sem eru nýkomnir í ensku úrvalsdeildina.
Atsu kom til Chelsea fyrir rúmlega einu ári en hann hefur verið á láni hjá Vitesse og Everton síðan.
Atsu kom til Chelsea fyrir rúmlega einu ári en hann hefur verið á láni hjá Vitesse og Everton síðan.
Atsu spilar mest sem kantmaður og sóknarsinnaður miðjumaður en hann lék með Gana á Heimsmeistaramótinu og Afríkumótinu en hann var nefndur besti leikmaður mótsins á síðasta Afríkumóti.
„Hann hafði úr mörgum félögum að velja en valdi okkur svo við erum mjög ánægðir!“ sagði Eddie Howe þjálfari Bournemouth.
„Hann er frábær leikmaður með mikla reynslu miðað við aldur. Hann hefur hraða og hæfileika til að komast í gegnum vörn andstæðinganna,“ bætti hann við.
Athugasemdir