Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, hefur staðfest að riftunarverð (e: release clause) í samningi Christian Benteke hljóðar upp á 32,5 milljónir punda.
Liverpool hefur áhuga á Benteke og Sherwood segir að leikmaðurinn geti farið ef að tilboð kemur upp á 32,5 milljónir punda.
Liverpool hefur áhuga á Benteke og Sherwood segir að leikmaðurinn geti farið ef að tilboð kemur upp á 32,5 milljónir punda.
„Það er riftunarverð í samningi hans og það er ómögulegt fyrir okkur að stöðva hann ef hann vill fara," sagði Sherwood.
Benteke hefur skorað tólf mörk í síðustu tólf leikjum en hann verður með Aston Villa í bikarúrslitaleiknum gegn Arsenal á morgun.
Benteke er 24 ára gamall en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Aston Villa árið 2013.
Athugasemdir