Þróttarar eru með fullt hús og markatöluna 14-1 eftir fjórar umferðir en þeir unnu 2-0 sigur gegn Víkingi Ólafsvík í dag. Oddur Björnsson skoraði annað markið.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 0 Víkingur Ó.
„Við töluðum um það í hálfleik að við þyrftum að vera þolinmóðir. Við vissum að við myndum á endanum skora," sagði Oddur eftir leik.
„Það er ekki hægt að biðja um betri byrjun á tímabilinu. Við höfum unnið mikið í sóknarleiknum."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Sjá einnig:
Smelltu hér til að lesa meira um leikinn
Athugasemdir