Þorkell Máni Pétursson, vinur Ólafs Karls Finsen og aðstoðarþjálfari Keflavíkur birti mynd á Twitter nú rétt í þessu af Ólafi og Gunnleifi Gunnleifssyni.
Þar afhendir Óli Kalli, Gunnleifi takkaskóna sem Óli stal úr búningsherbergi Breiðabliks í gærkvöldi og tók myndband af því, sem birtist á Fótbolta.net í morgun.
Þar afhendir Óli Kalli, Gunnleifi takkaskóna sem Óli stal úr búningsherbergi Breiðabliks í gærkvöldi og tók myndband af því, sem birtist á Fótbolta.net í morgun.
Breiðablik og Stjarnan mætast í 6. umferð Pepsi-deildar karla á sunnudaginn og þar verða þessir tveir leikmenn í eldlínunni. Bæði lið eru taplaus í deildinni með níu stig í 3. - 4. sæti.
Myndbandið af athæfi Ólafs, er hægt að sjá hér. En það hefur heldur betur vakið athygli.
Sjáðu tvítið frá Mána, hér að neðan.
@GulliGull1 er buin að fa skona sina fra @olikalli17 pic.twitter.com/Rawj1JA2cT
-- Máni Pétursson (@Manipeturs) May 29, 2015
Athugasemdir