Heimild: BBC
Paul Clement hefur ákveðið að hætta sem aðstoðaþjálfari Real Madrid. Búist var við þessum fréttum eftir að Real Madrid rak Carlo Ancelotti á dögunum.
Ancelotti og Clement eru miklir vinir og unnu þeir saman hjá bæði Chelsea og PSG, áður en þeir færðu sig saman til Real Madrid.
Ancelotti og Clement eru miklir vinir og unnu þeir saman hjá bæði Chelsea og PSG, áður en þeir færðu sig saman til Real Madrid.
„Það hefur verið heiður fyrir mig að vinna með Carlo hjá besta félagi í heimi. Ég vil þakka leikmönnunum, þjálfaraliðinu og stuðningsmönnunum. Hala Madrid,“ skrifaði Clement á Twitter.
Fastlega er búist við því að Clement fari heim til Englands og taki við stjórastöðu þar í landi.
Hann hefur verið orðaður við Sunderland og Derby.
Athugasemdir