Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. maí 2015 09:25
Magnús Már Einarsson
Southampton hafnar tilboði Liverpool í Clyne
Nathaniel Clyne.
Nathaniel Clyne.
Mynd: Getty Images
Southampton hefur hafnað tíu milljóna punda tilboði frá Liverpool í hægri bakvörðinn Nathaniel Clyne.

Hinn 24 ára gamli Clyne á eitt ár eftir af samningi sínum við Southampton.

Liverpool vill fá hann til að fylla skarð Glen Johnson sem er á förum í sumar.

Liverpool þekkir vel viðskipti við Southampton en í fyrra komu Adam Lallana, Dejan Lovren og Rickie Lambert til félagsins á tæpar 50 milljónir punda.

Auk þess að vilja fá Clyne þá eru Danny Ings framherji Burnley og James Milner miðjumaður Manchester City á óskalista Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner