Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   sun 29. maí 2016 19:56
Arnar Geir Halldórsson
Bjarni Jó: Hleyptum þessu í óþarfa spennu
Bjarni Jóhannsson
Bjarni Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, var sáttur með stigin þrjú í Laugardal í dag en segir sína menn hafa getað gert út um leikinn mun fyrr.

Þróttarar léku manni færri frá því á 38.mínútu þegar Hallur Hallsson fékk rautt spjald. Mikkel Maigaard Jakobsen kom svo Eyjamönnum yfir snemma í síðari hálfleik og reyndist það eina mark leiksins.

„Við hleyptum þessu í óþarfa spennu. Við vitum að lið sem lendir einum manni færri tekur ákveðna sénsa þegar líður á leikinn og við vorum alveg ótrúlega óskynsamir. Við áttum mjög álitleg hraðaupphlaup þar sem síðasta ákvörðun, sending eða slútt var handónýt," sagði Bjarni.

Hann gat ekki tjáð sig mikið um atvikið umdeilda þegar Hallur fékk rautt spjald.

„Ég verð að sjá það aftur. Menn fullyrða að hann hafi slegið til hans en ég get ekki tjáð mig um þetta að öðru leyti." sagði Bjarni sem talaði einnig um gott útivallargengi sinna manna en Eyjamenn hafa unnið tvo af þrem útileikjum sínum á þessari leiktíð.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

Sjá einnig:
Myndband: Hallur fékk rautt fyrir að slá Eyjamann í punginn
Gregg: Versta frammistaða sem ég hef séð hjá dómara
Hallur Hallsson: Þetta var ekki högg í pung
Mikkel Maigaard: Hann sló mig í djásnið
Athugasemdir
banner
banner
banner