sun 29. maí 2016 16:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gareth Bale elskar að spila fyrir Zidane
Gareth Bale eftir leikinn í gær.
Gareth Bale eftir leikinn í gær.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale hrósar þjálfara sínum, Zinedine Zidane eftir að liðið tryggði sér Evrópumeistaratitilinn í gær en liðið vann granna sína í Atletico í vítaspyrnukeppni.

Þetta var 11. titill Real í keppninni en Bale var einn af markaskorurum liðsins í vítaspyrnukeppninni.

„Hann kom inn og er búinn að vera mjög góður fyrir alla. Hann gefur okkur sjálfstraust og frelsi til að spila."

„Hann hjálpaði liðsandanum og við njótum þess allir að spila fyrir hann og það sást í kvöld (gærkvöldi)."
Athugasemdir
banner
banner
banner