Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. maí 2016 17:53
Arnar Geir Halldórsson
Inkasso-deildin: KA marði Leikni F - Selfoss burstaði HK
Ásgeir tryggði KA þrjú stig
Ásgeir tryggði KA þrjú stig
Mynd: Heimasíða KA
Seinni tveim leikjum dagsins í Inkasso deildinni lauk nú rétt í þessu þar sem KA-menn gerðu góða ferð austur á meðan Selfoss fór illa með HK í Kórnum í Kópavogi.

Ásgeir Sigurgeirsson reyndist hetja KA-manna því hann gerði eina mark leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Fáskrúðsfirðingar sitja því einir á botni deildarinnar, stigalausir eftir fjóra leiki.

HK-ingar hafa einu stigi meira í ellefta sætinu en Kópavogsliðið steinlá fyrir Selfyssingum í dag.

Leiknir F. 0 - 1 KA
0-1 Ásgeir Sigurgeirsson ('45)
Smelltu hér til að skoða textalýsingu frá leiknum

HK 0 - 3 Selfoss
0-1 Ivan Martinez Gutierrez ('4, víti)
0-2 Ivan Martinez Gutierrez ('26)
0-3 Haukur Ingi Gunnarsson ('74)
Smelltu hér til að skoða textalýsingu frá leiknum


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner