Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 29. maí 2016 16:52
Aron Elvar Finnsson
Lúkas Kostic: Þetta var óþarfa tap
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér finnst þetta bara algjört óþarfa tap,” sagði Lúkas Kostic, þjálfari Hauka, eftir 4-2 tap gegn Þór í Inkasso deildinni í dag.

Lestu um leikinn: Þór 4 -  2 Haukar

„Við vorum með leikinn algjörlega í okkar höndum, svo gerum við svolítið barnaleg mistök og erum gríðarlega miklir klaufar í mörkunum. Við hleyptum Þórsurum inn og þeir nýttu það vel,” bætti Lúkas við.

Haukar byrjuðu leikinn vel og komust yfir, en misstu svo dampinn og Þór tók öll völd á vellinum.
„Það er svolítið erfitt að útskýra, þeir voru mikið að kýla háum boltum upp í Gunna og Jóhann Helga og þeir ná í fráköst númer tvö. Þetta er mikið þessi hái bolti sem við náum ekki að svara nógu vel, við áttum að gera það, en eftir það verður mikill barningur. Við áttum dauðafæri í stöðunni 3-1 en náum ekki að klára og þá fáum við bara beint í andlitið. Þeir voru beittir í skyndisóknum, við vorum ekki nógu vel vakandi í því.”

Gunnar Örvar Stefánsson kom inná í liði Þórs í fyrri hálfleik og réðu Haukamenn lítið sem ekkert við hann.
„Greinilega. Skoraði hann ekki tvö mörk? Hann var bara mjög öflugur, var bæði mjög sterkur í loftinu og skoraði svo tvö mörk, það segir sitt.”


Nánar er rætt við Lúkas hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner