Björn Daníel Sverrisson spilaði allan leikinn fyrir Viking Stavanger í norsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið fékk Bodö/Glimt í heimsókn.
Björn Daníel kom Viking í forystu eftir fjögurra mínútna leik og endaði leikurinn svo með 2-0 sigri Viking sem er nú komið í fimmta sæti deildarinnar.
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson var á bekknum hjá Bodö/Glimt.
Annar Íslendingur var í eldlínunni á sama tíma því Guðmundur Kristjánsson lék allan leikinn fyrir Start sem steinlá gegn Stabæk 5-0.
Athugasemdir