„Mér fannst fyrri hálfleikurinn vera jafn og góður en markið datt þeirra megin. Þeir skora síðan í byrjun seinni hálfleiks og það drepur okkur svolítið," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals eftir 2-1 tap gegn KR í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 2 - 1 Valur
Valsmenn eru eftir leikinn með sjö stig í níunda sæti Pepsi-deildarinnar.
„Við erum ekki ánægðir með það. Það er deginum ljósara. Það er fúlt," sagði Ólafur en er pressa á Val í næsta leik?
„Ég hef aldrei verið í fótbolta án þess að það sé pressa á mér svo það er ekkert nýtt hjá mér."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir