Roy Keane segir Jose Mourinho vera mjög pirrandi en Keane tjáði sig um ráðningu Mourinho til Manchester United.
Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning við United og tekur við af Louis van Gaal á Old Trafford.
„Hann er ekki minn tebolli. Mér fannst hann mjög pirrandi þegar ég var þjálfari en það er bara persónulegt."
„Þú verður að vinna ef þú er hjá Manchester United og ferilskráin hans segir að hann er sigurvegari. Hann var alltaf að fara að verða góður kostur þegar Untied komst ekki í Meistaradeildina."
„Hann var laus, með frábæra ferilskrá og virtist passa vel en hann er ekki fyrir mig," sagði Írinn grjótharði.
Athugasemdir