Miðjumaðurinn Rúnar Freyr Þórhallsson var vonsvikinn eftir tap Hugins gegn Fram í Inkasso deildinni í dag.
Ivan Bubalo gerði eina mark leiksins eftir þrettán mínútna leik og náðu Huginsmenn ekki að koma til baka og jafna leikinn þrátt fyrir að hafa verið meira með boltann.
„Þetta var alls ekki nógu gott. Við vorum að spila vel og héldum boltanum örugglega 70-80% af leiknum. Við vorum ekki nógu sterkir á síðasta þriðjungnum og vorum ekki að klára færin nógu vel," sagði Rúnar.
Hann kveðst vera svekktur með stigasöfnunina í byrjun móts en Huginn er með þrjú stig eftir fjóra leiki og situr í 10.sæti deildarinnar.
„Við erum með þrjú stig en það væri sanngjarnt að vera með sjö stig að mínu mati. Við eigum klárlega að vinna þennan leik í dag og svo var tapið á móti Grindavík mjög sorglegt þar sem við skorum sjálfsmark," sagði Rúnar.
Athugasemdir