Portúgal 3-0 Noregur
1-0 Ricardo Quaresma (´13)
2-0 Raphael Guerreiro (´65)
3-0 Eder (´70)
1-0 Ricardo Quaresma (´13)
2-0 Raphael Guerreiro (´65)
3-0 Eder (´70)
Portúgalska landsliðið mætti því norska í vináttuleik í kvöld en fyrrnefnda liðið undirbýr sig af krafti fyrir EM í Frakklandi.
Portúgalar stilltu upp firnarsterku byrjunarliði þó þeir hafi leikið án sinnar skærustu stjörnu, Cristiano Ronaldo.
Leikið var á heimavelli Porto og höfðu heimamenn töluverða yfirburði. Þeir unnu að lokum 3-0 sigur eftir að hafa verið einu marki yfir í leikhléi.
Portúgal mætir Íslandi í St. Etienne þann 14.júní næstkomandi en strákarnir okkar hefja undirbúning sinn fyrir mótið formlega með því að mæta norska landsliðinu í vináttuleik næstkomandi miðvikudag.
Athugasemdir