Johan Djourou, fyrrum leikmaður Arsenal, segir Granist Xhaka vera svipaðan og Andrea Pirlo.
Xhaka varð fyrsti leikmaðurinn sem Arsenal fékk til sín fyrir næsta tímabil en hann kom frá Borussia Monchengladbach fyrir um 30 milljónir punda.
Djourou er mjög hrifinn af landa sínum og segir hann smellpassa í Arsenal liðið.
„Hann er með hæfileika til að spila mjög löngum, nákvæmnum boltnum og ég hef alltaf sagt að hann minnir mig á Pirlo. Hann er með hæfileika til að spila eins og Arsenal vill spila.
„Xhaka er með baráttuna í lagi og það mun hjálpa honum í úrvalsdeildinni," sagði þessi fyrrum liðsmaður Arsenal.
Athugasemdir