Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. maí 2017 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Hannes og félagar geta komist í Evrópudeildina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Randers 2 - 0 Odense (3-1 samanlagt)
1-0 M. Pourie ('90)
2-0 V. Lundberg ('94)
Rautt spjald: O. J. Lund, Odense ('75)

Marvin Pourie og Viktor Lundberg skoruðu í uppbótartíma er Hannes Þór Halldórsson og félagar í Randers tryggðu sig í úrslitaleik um að komast í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Heimamenn í Randers voru manni fleiri síðasta stundarfjórðung leiksins og kom sigurmarkið ekki fyrr en á lokamínútunum.

Randers getur enn tekist að bjarga frekar slöku tímabili með því að komast í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner