Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 29. maí 2017 19:17
Ívan Guðjón Baldursson
Huddersfield komst upp með neikvæða markatölu
Mynd: Getty Images
Huddersfield er komið upp í Úrvalsdeildina og maðurinn sem er að fá allt hrósið er knattspyrnustjórinn David Wagner, besti vinur og fyrrverandi aðstoðarþjálfari Jürgen Klopp hjá Borussia Dortmund.

Huddersfield tókst að hreppa umspilssæti í Championship deildinni þrátt fyrir að enda með -2 í markatölu.

Liðið vann svo umspilið sjálft með tveimur sigrum í vítaspyrnukeppni, eftir 210 mínútur gegn bæði Sheffield Wednesday og Reading.



Athugasemdir
banner
banner
banner