Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mán 29. maí 2017 22:05
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Kjartan: Versti leikur okkar í mótinu
Kjartan Stefánsson þjálfari Hauka.
Kjartan Stefánsson þjálfari Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við byrjuðum þennan leik mjög illa," sagði Kjartan Stefánsson, þjálfari kvennaliðs Hauka, eftir 4-1 tap á heimavelli gegn Val í 7.umferð Pepsi deildar kvenna.

Lestu um leikinn: Haukar 1 -  4 Valur

„Fyrsta markið var alveg hrikalega ódýrt. Engu að síðar þá var Valur að spila alveg frábærlega í dag og að sama skapi vorum við bara mjög slappar í fyrri hálfleik. Þetta jafnaðist aðeins út þarna í seinni hálfleiknum en klárlega versti leikur okkar í mótinu hingað til. Það er ákveðið áhyggjuefni en Valsarar eru að vakna til lífsins."

„Við erum ágætar svona við og við í uppspilinu en varnarlega þá erum við ekki í stöðum og féllum alltof aftarlega. Við töluðum fyrir leik að við ætluðum að mæta þeim svolítið en við héldum ekki alveg skipulagi í dag."

„Mér fannst það ekkert í upphafi að við værum að bera of mikla virðingu fyrir þeim. Vissulega þá er Valur flott lið eins og flest lið sem við erum búin að spila við. Ég held bara að það sé að bíta okkur svolítið þetta mótafyrirkomulag. Við erum að spila rosalega marga leiki, sömu leikmenn að spila hjá okkur og við erum í smá meiðslum."
Athugasemdir
banner
banner
banner